- Setjið sykurmolann í skeið og 2–3 dropa af Angostura bitters yfir hann.
- Setjið molann í botninn á glasinu og hellið koníakinu varlega yfir sykurmolann.
- Hallið glasinu örlítið og hellið kældu kampavíninu hægt út í. Þetta er gert til að varðveita loftbólurnar sem best.
- Skrælið litla ræmu af appelsínu- eða límónuberki og setjið í glasið.
Hér er um að ræða tímalausan drykk og gaman að sjá sjónarspilið sem verður til þegar kampavíninu er hellt yfir sykurmolann í botni glassins. Sykurinn leysist hægt upp og myndar samfelldan straum af fínum loftbólum sem dregur fram dýptina í drykknum. Gott jafnvægi myndast á milli þurrs freyðivíns, mildrar sætu og flókinna kryddtóna.