Verslunarmannahelgin framundan

Nú er vikan fyrir verslunarmannahelgina hafin, en hún er ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Áhersla er lögð á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig, en fyrir þau sem vilja forðast raðir er gott að huga að því að vera tímanlega!

Allar fréttir
Allar fréttir

Á ferðalagi

Þegar sól hækkar á lofti og ferðafiðringurinn gerir vart við sig fæ ég gjarnan ferðatengdar spurningar eins og hvernig vín henti í ferðalagið, hvort hentugra sé að velja kassavín eða flösku og hvernig sé best að kæla vínið eða bjórinn. Á sumrin breytist gjarnan vínvalið og léttari, ávaxtaríkari og frískari vín verða gjarnan fyrir valinu. Rauðvín sem ferðast er með þarf að þola að kólna örlítið og þá henta léttari og ávaxtaríkari vín betur.

Allar greinar

Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...

Allar greinar

Víða í Suður-Ameríku allavega í Argentínu og Uruguay er ekki venjan að bera fram rjóma eða soðsósur með grillmatnum. Þess í stað er oft notuð fersk sósa Chimichurri gerð úr ólífuolíu og ferskum kryddjurtum.
Það er tilvalið að breyta til og reyna þessa nýju sósu sem passar með svo mörgu.

Allar uppskriftir

Með einni ákvörðun getur það sem upphaflega átti að gera góðan gleðskap betri leitt af sér hörmungar og ævarandi iðrun. Hér er verið að tala um það þegar menn setjast undir stýri eftir neyslu áfengis...

Allar rannsóknir og greinar