Eftir helgina bætast um 80 víntegundir við það úrval sem fyrir er í vínkælinum í Vínbúðinni Heiðrúnu. Tegundirnar fást í takmörkuðu magni og er ætlað að mæta aukinni eftirspurn viðskiptavina eftir fágætari vöru fyrir jól og áramót. Eins og með allar aðrar vörur Vínbúðanna er einnig hægt að panta þær í Vefbúðinni.
Léttvínin koma frá fjölbreyttum vínsvæðum víða um heim, allt frá rótgrónum vínhéruðum til annarra svæða. Við val á vínunum var lögð áhersla á gæði, fjölbreytni og sérstöðu. Sum vínanna koma frá þekktum framleiðendum með langa sögu en önnur endurspegla ólíkar hefðir og nýjar áherslur í víngerð.
Einnig er vert að benda á að úrval af gjafavöru og gjafaöskjum er aldrei meira en nú fyrir jólin og um að gera að kynna sér það sem er í boði.
Vínráðgjafar og annað starfsfólk Vínbúðanna taka vel á móti viðskiptavinum og aðstoða við val á vörum eftir óskum hvers og eins, hvort sem það er í auknu úrvali í vínkælinum eða í vöruúrvali okkar almennt.