Stór pöntun eða veisla í vændum?
Oft reynist erfitt að ákvarða rétt magn af víni fyrir veislur eða velja rétt vín með matnum og þá er gott að fá aðstoð hjá vínráðgjafa. Einnig aðstoða þeir við stærri pantanir.
Veisluvín hefur aðsetur í Vínbúðinni Heiðrúnu og er hægt að fá ráðgjöf á staðnum, símleiðis 560-7730 eða með tölvupósti veisluvin@vinbudin.is.
Hvort sem um ræðir fyrirtæki eða einstaklinga hvetjum við viðskiptavini til að nýta sér þessa góðu þjónustu. Einnig bendum við á að auðvelt er að panta stærri sem minni pantanir í vefversluninni. Oft reynist erfitt að ákvarða rétt magn af víni fyrir veislur eða velja vín með matnum og þá er gott að fá aðstoð hjá vínráðgjafa vínbúðanna, Júlíusi Steinarssyni. Júlíus hefur aðsetur í Vínbúðinni Heiðrúnu og er hægt að fá ráðgjöf á staðnum, símleiðis eða með tölvupósti. Við hvetjum viðskiptavini til að nýta sér þessa góðu þjónustu.
Einnig geta viðskiptavinir nýtt sér veislureiknivélina til að áætla magnið.
Afgreiðslutími Veisluvíns þjónustunnar er mánudaga-föstudaga frá 11-17
Beinn sími er 560-7726 og netfang er veisluvin@vinbud.is