Frá og með deginum í dag, 23. nóvember, mun ÁTVR bjóða upp á heimsendingu á vörum úr Vefbúðinni. Boðið hefur verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúðanna frá árinu 2000 og úr vefbúð frá 2009.
Úrvalið í Vefbúðinni er mun breiðara en í Vínbúðunum. Með heimsendingu stígum við skref í átt að því að jafna aðgengi að þessu úrvali óháð búsetu án þess að hvika frá kröfum um ábyrga sölu og þjónustu. Heimsending getur jafnframt komið sér vel fyrir þá sem búa langt frá næstu Vínbúð og verið hentug þegar um stærri pantanir er að ræða, til dæmis fyrir veislur og aðra viðburði. Birgjar fá einnig aukin tækifæri til að koma á framfæri vörum sem ekki eru í hillum Vínbúðanna.
Pósturinn annast heimsendingar og greiða viðskiptavinir fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskrá Póstsins. Áætlaður afhendingartími er að jafnaði einn til þrír dagar. Heimsendingar verða ekki afgreiddar samdægurs. Viðskiptavinir geta áfram valið að fá pantanir sendar í Vínbúðir um allt land án endurgjalds.
Við kaup úr Vefbúðinni auðkenna viðskiptavinir sig með rafrænum skilríkjum. Öryggi og ábyrgð við afhendingu eru ekki síður mikilvæg og til að tryggja 20 ára aldurstakmark verður rafræn auðkenning einnig skilyrði þegar pöntun er afhent. Þannig er tryggt að sala og afhending fari fram í samræmi við hlutverk og ábyrgð ÁTVR.