Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Súrdeigspizza

með mozzarella eplum, lífrænu hunangi og heslihnetum

Fjöldi
9
Innihaldsefni GRUNNSÚR 700 g heilhveiti 700 g venjulegt hveiti SÚRDEIGSPIZZA 700 g vatn 200 g súr 850 g hveiti 150 g semolina hveiti Salt ÁLEGG Ferskur mozzarella Gráðaostur Þunnt skornar eplasneiða Lífrænt hunang Ristaðar heslihnetur Saxað spínat eða klettasalat
Aðferð

SÚRDEIG

Grunnsúr

Setjið 700 g af heilhveiti og 700 g af venjulegu hveiti í skál. Blandið vel saman.
Takið fram aðra hreina skál og blandið 300 g af hveitiblöndunni saman við 300 g af volgu vatni. Breiðið viskustykki yfir skálina og látið standa við stofuhita í tvo daga. Ef skorpa myndast ofan á súrnum er hún fjarlægð með skeið og fleygt. Gætið þess að súrinn kólni ekki!

Látið standa í einn dag í viðbót ef þarf en þegar súrinn er tilbúinn gefur hann frá sér súrsæta lykt og loftbólur myndast í honum. Hann á að vera froðukenndur. 

Að fæða grunnsúrinn
Takið 75 g af súrnum og setjið í annað ílát. Bætið síðan við 150 g af upphaflegu hveitiblöndunni og 150 g af vatni. Endurtakið þetta í viku á sama tíma dags þar til deigið fer að rísa og falla með reglubundnum hætti. 

 

SÚRDEIGSBAKSTURINN
Búið til súrdeig (sjá fyrir ofan). Það er sá hluti súrsins sem lætur brauðdeigið rísa og gefur brauðinu bragð. 
Til þess að fæða súr í eina uppskrift þarf að fæða 75 g af fullþroskuðum grunnsúr (án þess að fleygja neinu af honum) með 100 g vatni og 100 g af hveitiblöndu. Eftir u.þ.b. 2 klst. ætti hann að vera tilbúinn til notkunar í brauðið. Ef loftbólur myndast við stofuhita er hann tilbúinn. Hægt er að ganga úr skugga um að hann sé tilbúinn með því að setja dálítið af blöndunni í ílát með vatni, ef hún flýtur í vatninu þá er súrinn klár. 

Í brauðið þarf 700 g vatn, 200 g súr, 850 g hveiti og 150 g semolina hveiti (Afgangs súrinn er geymdur og settur saman við grunnsúrinn til að halda hringrásinni gangandi). Úr þessu magni fást um 9 pizzur. Hnoðið allt saman með höndunum þar til engir þurrir kekkir eru eftir í deiginu. Látið hvíla í hálftíma og breiðið yfir svo ekki myndist skorpa. Að hálftíma liðnum er 50 g af vatni og 20 g af salti bætt saman við og hnoðað í samhangandi deig. Látið hvíla í annan hálftíma. Bleytið hendurnar í vatni, grípið undir deigið og brjótið upp á hliðarnar, gerið þetta einu sinni frá öllum hliðum. Endurtakið þetta á hálftíma fresti í 2-3 klst. Deigið á að rísa um 25% og vera loftkennt viðkomu. Þá er tímabært að móta brauðin (tvö brauð úr einni uppskrift). Gott getur verið að skoða á netinu hvernig brauðið er mótað úr blautu deigi. Þegar búið er að móta brauðin eru þau sett á hvolf í körfu eða skál sem klædd er að innan með hveitistráðu viskustykki. Hægt er að geyma óbökuð brauðin í ísskáp yfir nóttina eða allt að sólarhring áður en þau eru bökuð.

Mælt er með að nota leirpott (Römertopf) til að tryggja góðan raka við baksturinn. Takið eitt brauð úr kælinum og forhitið ofninn og leirpottinn í 260°C. Veltið deiginu varlega úr körfunni í forhitaðan leirpottinn og skerið rákir í deigið með rakvélablaði. Setjið lok á pottinn og bakið í 20 mínútur. Lækkið hitann í 230°C og bakið í 10 mínútur í viðbót. Takið lokið af pottinum (varið ykkur á heitri gufunni þegar potturinn er opnaður) og bakið í 20 til 25 mínútur til viðbótar. Látið brauð kólna á grind og njótið svo sköpunarverksins.

Í eina 12 tommu pizzu fara u.þ.b. 215 g af deigi.

 

VINSÆLASTA ÁLEGGIÐ
Vinsælasta pizzan á The Coocoo´s Nest er með eftirtöldu áleggi:

  • Ferskur mozzarella
  • Gráðaostur
  • Þunnt skornar eplasneiða
  • Lífrænt hunang
  • Ristaðar heslihnetur
  • Saxað spínat eða klettasalat

Osturinn og eplin eru bökuð á pizzunni en hunangið, hneturnar og grænmetið sett á pizzuna um leið og hún er tekin úr ofninum.

 

VÍNIN MEÐ
Pizzan er almennt talin upprunin frá Ítalíu og því er upplagt að vera með ítalskt rauðvín eða hvítt ef því er að skipta. Fyrir þá sem kjósa bjórinn hentar ávaxta- og kryddbjór eða hveitibjór vel með þessum rétti.

Uppskrift fengin frá The Coocoo´s Nest
Fleiri Grænmetisréttir