Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Bleikjuflak ofnsteikt í smjörpappír „Papillote“

með rósmarín, sítrónu og fersku grænmeti

Fjöldi
4
Innihaldsefni 4 1 stk. fennel, kjarnhreinsað og þunnt sneitt 1 rauð paprika, kjarnhreinsuð og þunnt sneidd 1 stk. grænn kúrbítur, þunnt sneiddur 1 búnt vorlaukur, skorinn í grófa bita ½ búnt steinselja, söxuð 1 hvítlauksrif, saxað 1 tsk. chiliflögur (val) 1 sítróna í þunnum sneiðum 4 greinar rósmarín 8 msk. ólífuolía 1 stk. sítróna (safinn) Salt og pipar
Aðferð
  1. Útbúið 4 arkir af bökunarpappír, 60x60 cm
  2. Blandið saman öllu grænmetinu, ásamt hvítlauk, steinselju, chili, dálitlu salti og ólífuolíu.
  3. Skiptið því jafnt í fjóra hluta og komið fyrir á öðrum helming smjörpappírsins (svo passi undir fiskinn).
  4. Setjið bleikjuflökin ofan á grænmetið, raðið 2 sítrónusneiðum á hvert flak ásamt 1 grein af rósmarín.
  5. Kryddið með salti og pipar, skvettu af ólífuolíu og 1 msk. af sítrónusafa.

 

VÍNIN MEÐ
Ósætt hvítvín gjarnan með karakter af sítrus og steinefnum, t.d. frá Ástralíu eða franskan Chablis.

Uppskrift fengin frá Essensia
Fleiri Fiskréttir