Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Hörpuskel og epli

Innihaldsefni 10 stk. hörpuskel (80/100) 100 g fínt salt 100 g sykur 1 stk. sítrónubörkur ½ stk. rauður chilli ½ búnt ferskur kóríander 1 msk. ólífu olía 5 stk. döðlur 1 stk. grænt epli SÓSA 250 ml soja sósa 250 g sykur
Aðferð
  1. Hreinsið sinina af hörpuskelinni.
  2. Blandið sykri og salti saman í skál og bætið sítrónu berki út í.
  3. Dreifið helmingnum af saltblöndunni á bakka og leggið hörpuskelina ofan á, dreifið restinni af saltblöndunni yfir og látið hörpuskelina marinerast í 8 mínútur.
  4. Skolið saltið af hörpuskelinni með köldu vatni og leggið á þurrt viskustykki til að losna við sem mest vatn.
  5. Hitið pönnu og brúnið hörpuskelina í 30 sekúndur á hvorri hlið.
  6. Fínsaxið chilli og kóríander í skál, bætið olívu olíu útí og blandið vel saman, hörpuskelinni er síðan velt upp úr leginum.
  7. Takið steininn úr döðlunni og skerið í 3 hluta.
  8. Skerið eplið í ca. ½ cm kubba og geymið í köldu vatni með smá sítrónu safa.

 

SÓSA

  1. Hitið sojasósu og sykur mjög rólega saman í potti þar til sykurinn er alveg uppleystur og sósan er orðin þykk og góð.
  2. Kælið sósuna er síðan alveg niður.

 

SAMSETNING
Raðið hörpuskel, epli og döðlu á prjóna og dreifið sósunni yfir.

 

VÍNIN MEÐ
Sæt marinering á hörpuskelinni gerir smásætt til millisætt hvítvín, gjarna Riesling, vænlegan kost. Smásætt til millisætt rósavín kemur líka vel til greina. 

 

Sett inn af tilefni rósavíns-þema í Vínbúðunum Uppskrift fengin frá Aroni Má Jóhanssyni, Sushi samba
Fleiri Fiskréttir