Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Kengúrusalat

með berjum, sykurristuðum pekanhnetum, límónuteryaki og súrsuðu blómkáli

Innihaldsefni KENGÚRA 500 g kengúra 400 ml teriyakisósa Safi úr einni límónu SALAT 2 pottar lambhagasalat 1 poki íslenskt grænkál 250 g jarðarber 250 g bláber PEKANHNETUR 200 g pekanhnetur 100 g púðursykur 50 ml vatn LÍMÓNUTERIYAKISÓSA 100 ml teriyakisósa ½ límóna Blandað saman. SÚRSAÐ BLÓMKÁL 125 ml hvítvínsedik 125 ml vatn 90 g sykur ½ haus blómkál
Aðferð
  1. Kjötið látið liggja í teriyakisósunni og límónusafanum að lágmarki í um 1 klst.
  2. Kengúran þarf stuttan eldunartíma, um 1 mín. á hvorri hlið þar til hún er rare/medium rare.

 

SALAT
Öllu blandað saman.

 

PEKANHNETUR

  1. Púðursykur bræddur í vatni uns karamella myndast. Pekanhnetunum velt uppúr karamellunni og þær skornar í smærri bita þegar þær hafa kólnað.

 

LÍMÓNUTERIYAKISÓSA

  1. Hvítvínsedik, vatn og sykur soðið saman og látið kólna.
  2. Blómkálið skorið í bita og látið liggja í edikleginum í 10-15 mín.
  3. Salati, blómkáli og pekanhnetum blandað saman.
  4. Kengúran skorin í þunnar sneiðar og sett út á.
  5. Límónuteriyakisósu dreypt yfir salatið eftir smekk.

 

VÍNIN MEÐ
Með kengúrusalati er að sjálfsögðu vín frá Ástralíu. Með sætkrydduðum mat eins og þessum er einnig gott að nota kröftugan bjór en ekki of humlaðan þar sem það virkar ekki vel með sætunni. Porter og Stout henta vel með þessum rétti en einnig bragðmeiri öltegundir eins og t.d. „barleywine“.

Frá þemadögunum 'Bjór og matur' 2015 (PDF) Uppskrift fengin frá Frederiksen Ale House
Fleiri Villibráðaréttir