Loka
  • Opnunartímar
  • Vörur
    • Allar vörur
      • Bjór
      • Eftirréttavín o.fl.
      • Freyðivín
      • Hvítvín
      • Rauðvín
      • Rósavín
      • Síder og gosblöndur
      • Sterkt
      • Umbúðir og aðrar söluvörur
    • Nýtt
    • Væntanlegt
    • Sérpöntun
    • Tóbakspöntun
    • Innkallanir
    • Skilareglur
  • Vefbúð
  • Vínráðgjöf og matur
    • Vínráðgjafar
    • Veisluvín/reiknivél
    • Vínflokkar
    • Bjórflokkar
    • Uppskriftir
    • Kokteilar
    • Greinar
    • Matartákn og sérmerkingar
    • Þrúgur
    • Útgefið efni
    • Árgangatafla
  • Tóbak
    • Tóbak forsíða
    • Leiðbeiningar
    • Tilkynningar og skráning
    • Lög og reglur
    • Eftirlit
    • English
  • Um ÁTVR
    • Fréttir
    • Fyrirtækið
      • Hlutverk og stefnur
      • Lög og reglur
      • Saga ÁTVR
      • Skipurit
      • Sölutölur
      • Styrkbeiðnir
      • Sölustarfsemi
      • Spurt og svarað
      • Útgefið efni
    • Mannauður
      • Jafnlaunaúttekt
      • Mannauðsstefna
    • Samfélagsábyrgð
      • Loftslagsmarkmið
      • Skilríkin meðferðis
      • Herferðir
      • Umhverfið
      • Rannsóknir og greinar
      • Norræna leiðin
      • Rafrænir reikningar
      • Þyngd umbúða
    • Laus störf
    • Fyrir fjölmiðla
    • Fyrir birgja
    • Hafðu samband
  • English Íslenska

Vínbúðin Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

OpnunartímarVörurVefbúðVínráðgjöf og maturTóbakUm ÁTVR
Innskráning ENSkipta um tungumál Opna leit Sjá körfu1 Opna leiðarkerfi
  • Forsíða

Hvítvín og skelfiskur Sjá vörulista

UppskriftirAllar uppskriftir

Grillaður kjúklingur með sveitasælu

Grillaður kjúklingur

  1. Kljúfið kjúklinginn í tvennt.
  2. Hrærið saman hvítlauk, blóðberg, estragon, appelsínubörk, hlynsíróp og dijon-sinnep og penslið yfir kjúklinginn.
  3. Grillið kjúklinginn í 15 mínútur við miðlungshita, lækkið síðan hitann og grillið áfram í 40 mínútur.
  4. Snúið kjúklingnum eftir þörfum og penslið með kryddleginum.

 

SVEITASÆLA
Grænmetið er skorið í grófa bita og steikt í potti í 10 mínútur. Bætið kjúklingakrafti saman við ásamt 1 dl af vatni og sjóðið eftir smekk.

 

 

VÍNIN MEÐ
Ávaxtarík og mjúk vín eru heppileg með ljósu kjöti eins og í þessum rétti. 

 

Grillaður lax

Grillaður lax

  1. Setjið laxinn í eldfast mót.
  2. Blandið saman olíu, kryddi og hvítlauk.
  3. Hellið yfir laxinn og látið standa í 10 mínútur.
  4. Leggið laxinn á heitt grill og eldið í 4 til 5 mínútur á hvorri hlið.

 

SPÍNAT OG EPLI

  1. Bræðið smjör í potti.
  2. Mýkið saxaðan blaðlauk, epli og karrí í smjörinu í 3 mínútur.
  3. Bætið spínati út í og hellið portvíni yfir. Takið pottinn af hitanum, lokið og látið standa í nokkrar mínútur.

 

VÍNIN MEÐ
Létt rauðvín eða jafnvel rósavín eiga hér vel við.

Grilluð jarðarber með vanilluskyrkremi

Grilluð jarðarber

  1. Skolið jarðarberin, leggið í eldfast mót og hellið yfir þau sætu hvítvíni.
  2. Kreistið úr límónu yfir berin, stráið síðan yfir þau rósapipar og hrásykri og dreypið loks olíu yfir.
  3. Látið standa í 1 klukkustund.
  4. Takið jarðarberin úr leginum og setjið á grillspjótin. Grillið öðrum megin í þrjár mínútur.

 

VANILLUSKYRKREM
Gott er að byrja á því að búa til skyrkremið. Þeytið rjómann í skál. Blandið vel saman rjómanum, vanilluskyrinu, safa úr sítrónu og berkinum. Setjið í kæli.

Setjið á diska, hellið vínleginum yfir og berið fram með vanilluskyrkreminu.

VÍNIN MEÐ

Sæt eftirréttavín passa hér vel. 

 

Franskar makkarónur

Franskar makkarónur

  1. Setjið möndlur í matvinnsluvél og saxið þar til þær eru orðnar að fínu mjöli.
  2. Blandið saman í skál möndlumjöli, flórsykri (og kakói, ef gera á súkkulaðimakkarónur).
  3. Þeytið eggjahvítur, bætið sykri út í og þeytið þar til blandan er stíf.
  4. Blandið þurrefnum saman við eggjahvíturnar í þremur skömmtum með sleif og hrærið vel á milli.
  5. Setjið litinn út í. Sprautið litlar kökur á plötu með bökunarpappír og látið standa í 30 mín. Bakið við 150°C í 8-10 mínútur.

 

FYLLINGAR FYRIR MAKKARÓNUR:

SÚKKULAÐIKREM

  1. Saxið súkkulaðið fínt og setjið í skál. Hitið 110 ml af rjóma ásamt hunangi að suðu.
  2. Hellið helmingnum af   hunangsrjómanum yfir saxað súkkulaðið og hrærið út frá miðju þar til byrjar að myndast binding.
  3. Bætið afganginum af blöndunni saman við og hrærið saman.
  4. Hellið 250 ml af köldum rjóma út í og blandið vel.
  5. Kælið í ísskáp í u.þ.b. 1 klst. Þeytið kremið upp áður en það er notað. Smyrjið kreminu á helminginn af makkarónunum.
  6. Leggið síðan hinn helminginn ofan á og búið til samlokur.

 

HINDBERJAFYLLING

  1. Hitið maukið og hunangið að suðu og hellið yfir saxað súkkulaðið.
  2. Látið standa í 1 mínútu. Hærið og setjið smjörið saman við í litlum bitum og blandið öllu saman.
  3. Kælið örlítið og búið til samlokur á sama hátt og lýst er hér fyrir ofan.

 

VÍNIN MEÐ
Sæt, hvít eftirréttavín passa vel með makkarónunum

Pavlova

Pavlova

Pavlova. Uppskriftin dugar í u.þ.b. 10 kökur.

FRANSKUR MARENS

  1. Þeytið eggjahvíturnar á meðalhraða og bætið strásykrinum saman við í smáskömmtum til að fá betri byggingu í marensinn.
  2. Blandið því næst sigtuðum flórsykrinum varlega saman við með sleikju.
  3. Búið til 10 kökur með því að sprauta marensinum á plötu með bökunarpappír.
  4. Stráið dálitlum sigtuðum flórsykri yfir og bakið við 120°C í u.þ.b. 15-20 mín. þannig að miðjan sé ennþá mjúk.
  5. Kælið örlítið og frystið.
  6. Gera þarf ráð fyrir að koma plötunni inn í frysti. Þegar marensinn er orðinn vel kaldur má setja hann í box og geyma í frysti þar til hann er notaður.

VANILLU-RJÓMAKREM

  1. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
  2. Skafið innan úr vanillustönginni og setjið saman við rjómann, hitið upp að suðu og bætið matarlíminu út í.
  3. Hellið blöndunni síðan í litlum skömmtum yfir saxað súkkulaðið og hrærið í á milli, myndið góða bindingu. Gott er að vinna blönduna aðeins með töfrasprota í restina.
  4. Hellið í skál og hyljið með plastfilmu.
  5. Geymið í kæli í minnst 3 tíma eða til næsta dags.
  6. Þegar Pavlovan er borin fram er kremið þeytt upp þar til mjúk áferð myndast og hægt er að mynda kúlur með skeið eins og ís. Setjið eina kúlu á hverja marensköku.
  7. Þennan eftirrétt er gott að bera fram með ávaxtasósu og skornum berjum.

HINDBERJASÓSA

  1. Maukið berin örlítið í skál.
  2. Búið til síróp með því að sjóða saman vatn, sykur og hunang.
  3. Hellið yfir berin og blandið vel.

 

VÍNIN  MEÐ
Hvít eftirréttavín eru upplögð með þessum rétti

Marsipanbrauð m/koníaki

Marsipanbrauð

Uppskriftin gefur 2 brauð (rúllur)

  1. Setjið sykurinn í lítinn pott og bræðið.
  2. Setjið hneturnar út í og veltið í sykrinum þar til hann er orðinn ljóskaramellubrúnn, gætið þess að hann brenni ekki.
  3. Hellið snöggt á bökunarpappír, dreifið úr sykurristuðum hnetunum og látið þær kólna.
  4. Myljið síðan hneturnar og blandið saman við marsipanið ásamt dálitlu koníaki (eftir smekk) án þess þó að massinn verði of blautur. Skiptið massanum í tvo hluta og búið til marsipanbrauð með því að rúlla honum upp í lengju.
  5. Látið standa og þorna í nokkra tíma.
  6. Temprið súkkulaðið á eftirfarandi hátt: Bræðið 200 g af súkkulaði í örbylgju eða yfir vatnsbaði þar til hitinn nær 45-50°C.
  7. Takið af hitanum. Fínsaxið 100 g sem eftir eru og hrærið saman við brædda súkkulaðið með sleif þar til hitinn er kominn niður í 31-32°C. Þá á súkkulaðið að vera tilbúið og hægt að hjúpa brauðið.
  8. Penslið súkkulaðinu fyrst á botninn á brauðinu og síðan á afganginn, u.þ.b. tvær umferðir. Setjið heilar pekanhnetur ofan á til skrauts.

 

VÍNIN MEÐ
Rauð og hvít eftiréttavín eru upplögð með marsipaninu.

 

FróðleikurAllar greinar

Hvítvín og skelfiskur

Hvítvín og skelfiskur

Þegar velja á hvítvín með skelfisk eru nokkur atriði sem ágætt er að hafa í huga. Skelfiskur er að öllu jöfnu bragðlítill og er það því matreiðslan sem hefur mikil áhrif á bragð og byggingu réttarins. Það er ekki aðeins grill, panna, ofn eða pottur sem hefur áhrif heldur einnig innihaldsefni réttarins eins og sítróna eða rjómi þar sem sýra og fita skipta máli fyrir pörun víns og matar. Gott er að vínin séu sýrurík og fersk en það má finna slík vín meðal annars úr þessum þrúgum: Chardonnay, Sauvignon Blanc og Riesling. Vín úr öðru þrúgum eins og Austurrískum Grüner Veltliner, spænskum Verdejo og spænskum Albariño geta vel gengið upp. Ef sterkt krydd, eins og chilli (eldpipar), er notað getur verið ágætt að finna Riesling með örlítilli sætu. Mörg vín frá Alsace úr mismunandi þrúgum eru oft með örlítilli sætu og geta því parast vel með sterkum réttum.

Vín með rækjum

Rækjur og vínin með

Ítalskur Pinot Grigio og Soave henta vel með rækjum og einföldum rækjuréttum. Sé notaður rjómi, smjör eða annað feitt innihaldsefni í réttinum getur verið ágætt að leita í sýruríkan Riesling.

Vínin með humrinum

Humar og vínin með

Chardonnay býr að öllu jöfnu yfir góðri sýru. Humar með sítrónu parast vel með fínlegum Chardonnay eins og frá Chablis í Frakklandi. Með rjóma eða majónesi getur verið ágætt að fara aðeins sunnar í Búrgúnd (Pouilly-Fuissé, Puligny, Meursault) eða Chardonnay frá löndum í nýja heiminum, eins og Bandaríkjunum, Chile og Nýja Sjálandi.

Vín með bláskel

Bláskel og vínin með

Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...

Hitastig hvítvína

Hitastig hvítvína

Hvítvín eru að öllu jöfnu borin fram kæld. Misjafnt er þó hversu köld þau eiga að vera og er þá gott að hafa ákveðin atriði í huga...

Chablis

Chablis

Þegar velja á hvítvín með sjávarfangi kemur Chablis ósjálfrátt upp í hugann, en margir kannast við nafnið Chablis, sem er eflaust eitt þekktasta..

 

 

 

Opnunartímar höfuðborgarsvæðis Mán-fim 11-18 Fös 11-19 Lau 11-18
Kringlan Mán-fös 11-18:30 Lau 11-18
Álfrún, Dalvegur, Skeifan og Skútuvogur  Mán-fös 10-20 Lau 11-18Allir opnunartímar
Netfang ÁTVR vinbudin@vinbudin.is Fyrirspurnir pantana pantanir@vinbudin.is Vínráðgjöf og veisluvín veisluvin@vinbudin.is Símanúmer 560-7700
Laus störf Veisluvín og reiknivél Kokteilauppskriftir Tóbakspöntun Birgjavefur Rafrænir reikningar
 

Opnunartímar skrifstofu Mán-fim 8:30 - 16:30, Fös 8:30 - 15:00

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, Stuðlahálsi 2, 110 Reykjavík

Kennitala 410169-4369 | VSK-númer 11652

Öll miðlun efnis af vefsíðu er óheimild án samþykkis ÁTVR

Lesa um vafrakökur