Meira úrval af vínum í vínkæli Heiðrúnar

Eftir helgina bætast um 80 víntegundir við það úrval sem fyrir er í vínkælinum í Vínbúðinni Heiðrúnu. Tegundirnar fást í takmörkuðu magni og er ætlað að mæta aukinni eftirspurn viðskiptavina eftir fágætari vöru fyrir jól og áramót. Eins og með allar aðrar vörur Vínbúðanna er hægt að panta þær í Vefbúðinni.

Allar fréttir
Allar fréttir

Jólabjórinn

Í dag hefst formleg sala á jólabjór þó enn séu nokkrar vikur til jóla. Í ár verða um 80 tegundir í sölu, sumar í margvíslegum umbúðum eins og mismunandi stærðum af dósum og flösku. Það er ekkert svo ógurlega langt síðan það voru örfáar tegundir í boði og margar þeirra keimlíkar. Í dag sjáum við hins vegar að fjölbreytileikinn hefur tekið við stjórnina og við fögnum því. Þannig eru í boði allt frá léttari lite bjórum til þéttra stout bjóra. En hvernig áttu að komast að því hvað er best að smakka?

Allar greinar

Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...

Allar greinar

Það liggur beinast við að hafa Chablis hvítvín með sósunni, þó að annað þurrt hvítvín komi einnig til greina.

Allar uppskriftir

Öll fylki í Bandaríkjunum setja einhverskonar kvaðir á áfengi, s.s. í formi skattlagningar, takmörkun á áfengissöluleyfi og sölutíma og í flestum tilfellum er krafist þriggja laga kerfis þar sem eignarhald framleiðenda, heildsala og smásala þarf að vera aðskilið. Einkavæðing á sölu áfengis hefur því ekki leitt til fullkomlega frjáls markaðar í Bandaríkjunum.

Allar rannsóknir og greinar