Vissir þú að þú getur fengið vefpöntunina þína afhenta samdægurs á höfuðborgarsvæðinu? Með því að versla á vinbudin.is færðu aðgang að okkar allra mesta vöruúrvali og sækir svo þangað sem þér hentar best, án aukakostnaðar. Ef þú klárar pöntunina fyrir kl. 13:00 á virkum dögum geturðu sótt hana strax seinna sama dag..
Koníak er tegund af brandý sem framleitt er í Cognac-héraði í Frakklandi og á sér sögu sem spannar margar aldir. Nafnið „brandy“ er dregið af hollenska orðinu brandewijn eða „brennt vín“, sem vísar til eimingarferlisins.
Gjafakortin er hægt að nota í öllum Vínbúðum og einnig hægt að kaupa þau þar.
Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...
Hvítvín henta vel með þessum rétti, en lykillinn að góðri pörun er að haka við "austurlenskt" í vöruleitinni.
Öll fylki í Bandaríkjunum setja einhverskonar kvaðir á áfengi, s.s. í formi skattlagningar, takmörkun á áfengissöluleyfi og sölutíma og í flestum tilfellum er krafist þriggja laga kerfis þar sem eignarhald framleiðenda, heildsala og smásala þarf að vera aðskilið. Einkavæðing á sölu áfengis hefur því ekki leitt til fullkomlega frjáls markaðar í Bandaríkjunum.