Uppskriftavefur Vínbúðarinnar lumar á ýmsum hugmyndum fyrir matgæðinga. Þar má finna fjölbreytt úrval uppskrifta sem henta ólíkum smekk og tilefnum, hvort sem leitað er að ljúffengum fiskrétti, gómsætum kjúklingarétti, grænmetisréttum eða freistandi eftirréttum.
Nú þegar október er runninn upp er langt liðið á uppskerutíma á norðurhveli jarðar. Með árunum hefur upphaf uppskeru stöðugt færst framar í dagatalinu. Er það einkum rakið til hlýnunar jarðar, þar sem hækkandi meðalhiti flýtir fyrir þroskaferli berjanna. Það er þó ekki endilega jákvætt því vínberið þarf ákveðinn tíma til að þroskast og oftar en ekki er betra að það flýti sér hægt.
Gjafakortin er hægt að nota í öllum Vínbúðum og einnig hægt að kaupa þau þar.
Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...
Sýran og kryddunin í þessum rétti kallar á hvítvín og þrúgur með ferska sýru, t.d. ósætan Riesling eða Sauvignon Blanc. Fyrir þá sem velja bjórinn kallar þessi réttur á hveitibjór.
Öll fylki í Bandaríkjunum setja einhverskonar kvaðir á áfengi, s.s. í formi skattlagningar, takmörkun á áfengissöluleyfi og sölutíma og í flestum tilfellum er krafist þriggja laga kerfis þar sem eignarhald framleiðenda, heildsala og smásala þarf að vera aðskilið. Einkavæðing á sölu áfengis hefur því ekki leitt til fullkomlega frjáls markaðar í Bandaríkjunum.