Skerið hörpudiskinn í þunnar sneiðar. Gott er að gera það þegar enn er dálítið frost í honum. Raðið sneiðunum á fjóra diska. Hrærið saman límónusafanum og ólífuolíunni og dreypið yfir. Merjið rósapiparinn og stráið honum yfir diskana. Klippið ögn af graslauk yfir hörpudiskinn og kryddið hann með salti og pipar. Berið strax fram.
VÍNIN MEÐ
Skelfiskurinn kallar á ferskleika og þá er upplagt að prufa kampavín eða fersk hvítvín.