Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Kjúklingavængir

Innihaldsefni 2 kg kjúklingavængir 4 l vatn 150 g salt SÓSA 1 msk. engifer, saxað 3 msk. hvítlaukur, saxaður 100 ml Mirin 100 ml sojasósa 100 ml appelsínusafi 1 stK. appelsína (börkurinn) 3 msk. gerjað kóreskt chili-mauk 1 tsk. Shriracha sósa eða Sambal Oelek 3 msk. púðursykur 2 msk. hrísgrjónaedik 1 msk. sesamolía DEIG TIL AÐ STEIKJA VÆNGINA 2 dl hveiti 2 dl maizenamjöl ½ l vatn 1 tsk. salt TIL SKRAUTS 2 msk. sesamfræ 1 búnt vorlaukur
Aðferð
  1. Hrærið saman salti og vatni í skál þangað til að saltið er uppleyst.
  2. Skerið kjúklingavængina í tvennt og leggið í saltvatnið í að minnsta kosti 2 klst.
  3. Kjúklingavængirnir eru teknir úr saltvatninu og þerraðir dálítið áður en þeir eru settir í deigið til djúpsteikingar. Steikið vængina, nokkra í einu, í 160°C heitri olíu í 4-5 mín. eða þangað til að þeir taka á sig smá lit.
  4. Setjið á viskustykki til að þerra.
  5. Steikið vængina aftur í 180°C heitri olíu þar til þeir verða gullnir á lit. Setjið þá síðan beint í sósuna og blandið öllu vel saman.
  6. Setjið í skál og skreytið með ristuðum sesamfræjum og fínt skornum vorlauk.

SÓSA

  1. Setjið engifer og hvítlauk í pott og steikið þangað til mjúkt.
  2. Hellið öllum hinum innihaldsefnunum yfir og látið sjóða í 2-3 mín.
  3. Setjið sósuna til hliðar.

 

VÍNIN MEÐ

Kryddunin kallar á Gewurztraminer hvítvín eða rauðvín með smá sætu.

Uppskrift fengin frá Múlakaffi
Fleiri Kjúklingaréttir