Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Coq au vin

(rauðvínssoðinn kjúklingur)

Fjöldi
4
Innihaldsefni 3 msk . ólífuolía 1 stk. kjúklingur, skorinn í 9 bita 2 stk. litlir laukar, skornir í bita 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð 10 stk. sveppir, heilir 5 sneiðar beikon, skorið í grófa bita 2 stk. lárviðarlauf 1 tsk. tímían 1/3 flaska rauðvín 4 cl koníak eða brandí 2 msk. söxuð steinselja Sósujafnari 60 g kalt smjör Salt og nýmalaður pipar
Aðferð
  1. Kryddið kjúklingabitana með salti og pipar og steikið þá í olíu á pönnu þangað til þeir verða fallega brúnir.
  2. Takið þá bitana af pönnunni og setjið í pott.
  3. Setjið lauk, hvítlauk, sveppi og beikon á sömu pönnu og látið krauma.
  4. Bætið þá rauðvíni og koníaki á pönnuna, látið sjóða í 1 mínútu og hellið síðan yfir í pottinn.
  5. Setjið lok á pottinn og látið malla við vægan hita í 30 mínútur.
  6. Sigtið þá soðið frá, setjið það í annan pott og þykkið með sósujafnara.
  7. Bætið steinselju og smjöri í pottinn og hrærið í með sleif þangað til smjörið hefur bráðnað. Eftir það má sósan ekki sjóða.
  8. Hellið sósunni yfir í pottinn með kjúklingabitunum og berið fram með t.d. hrísgrjónum, salati og grófu brauði.

 

 

VÍNIN MEÐ
Uppruni þessa réttar er í Bourgogne og því upplagt að nota rauðvín þaðan. 

 

Frá þemadögunum "Franskir dagar", 2004 (PDF) Uppskrift fengin frá Gestgjafanum
Fleiri Kjúklingaréttir