Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Chablissósa

Innihaldsefni 1 bolli Chablis eða annað þurrt hvítvín 1-2 stk. skallotlaukar Estragon 1 bolli kjötsoð 3 msk. tómatpúrré 3 msk. rjómi 1 tsk. smjör
Aðferð

Þessi sósa passar vel með reyktu grísakjöti.

  1. Hvítvín, skallotlaukar og smávegis estragon er soðið niður um rúmlega helming.
  2. Þá er kjötsoði og tómatpúrré bætt út í og látið sjóða við mjög lágan hita í um það bil klukkutíma.
  3. Því næst er rjómanum bætt út í og látið sjóða í 10 mínútur í viðbót.
  4. Loks er sósan sigtuð með fínu sigti og smjöri hrært saman við.

 

VÍNIN MEÐ
Það liggur beinast við að hafa  Chablis hvítvín með sósunni, þó að annað þurrt hvítvín komi einnig til greina.

Fleiri Svínakjötsréttir