Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Humar crudo

Fjöldi
4
Innihaldsefni 400 g skelflettur humar 100 g heslihnetur 1-2 blöð nori sjávarþang 1 stk. greip 2 stk. límóna 100 ml kaldpressuð repjuolía
Aðferð
  1. Humarinn er skorinn fínt með hníf og skipt í fernt, hann settur á milli tveggja arka af bökunarpappír og flattur út , t.d. með kökukefli. Því næst eru humarsneiðarnar lagðar á disk og saltaðar létt, greip bitum, hnetum og nori dreift yfir og loks er  vinagrettunni hellt yfir.
  2. Gott er að rista noriið á grilli eða pönnu og skera síðan. 

 

VÍNIN MEÐ:

Með þessum humarrétti parast fínlegur og óeikaður Chardonnay vel, til dæmis frá svæði eins og Chablis í Frakklandi. 

Uppskrift fengin frá Von Mathúsi
Fleiri Fiskréttir