Hvít sangría

Fjöldi
6
Erfiðleikastig
Miðlungserfitt
Áhöld
Hnífur og brettiMælikanna
Innihaldsefni 750 ml ósætt hvítvín 60 ml brandí (má sleppa) 60 ml appelsínulíkjör Klakar 1 stk epli 1 bolli fersk jarðarber 1 stk appelsína 1 stk límona 1 dós sódavatn
Hentugt glas
Aðferð
  1. Skerið ávextina og setjið í könnuna.  Takið kjarnann úr eplinu og skerið eplið í þunna báta, jarðarberin til helminga og appelsínuna í þunnar sneiðar.
  2. Gott er að þrýsta létt á ávextina með sleif eða skeið til að leysa örlítinn safa úr appelsínunni og jarðarberjunum. Passið að ýta ekki of fast þannig að ávextirnir verði ekki að mauki.  
  3. Hellið í könnuna hvítvíni, brandí, appelsínulíkjör (t.d. Triple sec) og límónusafa. Hrærið varlega saman.  
  4. Lokið könnunni (t.d. með filmu) og setjið í ísskáp í a.m.k. 2 til 4 klukkustundir til að kæla og marinera ávextina í blöndunni. 
  5. Setjið sódavatn og klaka í könnuna rétt áður en sangrían er borin fram.

Ef þú vilt að fólk geti valið sjálft hversu sæt sangrían á að vera er hægt að sleppa því að setja sódavatnið í könnuna. Hver og einn getur þá fyllt ¾ af glasinu með sangríu og valið svo um að fylla upp með sódavatni eða, fyrir þá sem vilja hafa drykkinn sætari, með Sprite, engiferöli eða skvettu af sykursírópi.   

 

 

Gott ráð Það getur verið gott (og fallegt) að setja myntu eða annað laufkrydd með. Þá er gott að slá myntunni annað hvort í glas eða lófa áður en henni er bætt út í. Þannig kemur meira myntubragð í drykkinn.
Gott er að velja hlutlaust, ósætt eða millisætt hvítvín t.d. Pinot Grigio eða Chardonnay.
Hægt er að bæta við fleiri ávöxtum s.s. nektarínu, ferskju, bláberjum, eða hindberjum.
Fleiri allir kokteilar
Miðnes allir kokteilar
Bluebird allir kokteilar
Vinsælir kokteilar
Old fashioned viskíkokteilar
Mojito rommkokteilar
Negroni ginkokteilar