Vínbúðin Reykjanesbæ óskar eftir starfsfólki í tímavinnu. Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingum sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
- Umhirða búðar
Hæfnikröfur
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er breytilegt eftir þörfum.
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið.
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar: Hörður Hersir Harðarson -
reykjanesbaer@vinbudin.is - 560-7843 og Thelma Kristín Snorradóttir -
starf@vinbudin.is - 560 7700.
Sækja um starf