Sala ársins 2008 jókst um 4,2% í lítrum í samanburði við árið 2007. Alls var selt áfengi fyrir 17.809 þús. kr. með virðisaukaskatti.
Sala hvítvíns jókst um 13,4% á tímabilinu og sala rauðvíns um 3,8%.
Sala lagerbjórs og ókryddaðs brennivíns jókst um 4,3% og 6,5% á tímabilinu.

Ef desember er skoðaður sérstaklega þá voru seldir 2.120 þús. lítrar en í desember 2007 voru seldir 2.107 þús. lítrar sem er tæplega 1% aukning.
Fjöldi viðskiptavina í desember var um 420 þúsund eða um 5% fleiri en í desember 2007.
Alls komu 4,3 milljónir viðskiptavina í Vínbúðirnar á árinu, flestir í júlí um 445 þúsund.
Alls var selt tóbak fyrir 6.970 þús. kr. með virðisaukaskatti. Alls voru seld 1.612 þúsund karton af sígarettum og 19.948 kíló af neftóbaki.