Kryddaður samhljómur

Páll Sigurðsson, vínsérfræðingur

(úr Vínblaðinu, 1. tbl.7. árg.)

Íslenska lambakjötið hefur umfram annað
kjöt einstaka eiginleika til að samsvara sér
vel með víni. Það er ekki bara að lambakjötið
falli vel að víninu heldur virðist það
oft draga fram það besta í víninu og er það
eflaust ástæðan fyrir því að margir vínframleiðendur
kjósa oft að bera fram villikryddaða
lambasteik með rauðvíninu sínu, til að
undirstrika bragð og ilmeiginleika vínsins,
þegar þeir eru að kynna framleiðslu sína.
Fitan í lambakjötinu gerir það einstaklega
vínvænt og ekki spillir fyrir að lambið hefur
verið að leika sér uppi á fjöllum yfir sumarið
og nærst á lyngi og kryddjurtum sem
gerir íslenska lambið að þeirri gæðavöru
sem það er.
Með villikrydduðum lambahrygg eru
rauðvín frá Rioja og Ribera del Duero tilvalin,
kryddin í víninu stilla sér upp á móti
kryddaða lambinu og úr verður flottur samhljómur.
Með gamla, góða klassíska lambalærinu
væri ég til í að bregða mér til Bordeaux en
rauðvínin þaðan eru í einstaklega góðum
félagsskap með góðu læri. Í Bordeauxvínum
má oft finna keim af heiðarjurtum,
lyngi, villisveppum, skógarbotni og eik.
Langtímaeldaðir lambaskankar eru bragðmiklir
og má því velja nokkuð öflugt vín
með þeim. Vín úr Cabernet Sauvignon eiga
sterkan leik hér og mætti benda á vín frá
t.d. Chile og jafnvel Ástralíu.
Pottréttir úr lambakjöti falla vel að vínum
frá Cotes du Rhone eða Suður-Frakklandi.
Nú ef einhver er búinn að finna grillið eftir
veturinn, þá henta vín frá nýja heiminum
vel með grilluðu lambakjöti, þar er það sætkenndur
ávöxtur og eikartónar sem undirstrika
grillbragðið. Cabernet Sauvignon,
blöndur úr Cabernet og Merlot eða Shiraz
og Cabernet virka vel.
Möguleikarnir í vínvalinu eru óteljandi og
ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi, sem getur þessvegna verið eitthvað
allt annað en ég hef tekið til hér.
Ef þið eruð með gesti í mat, þá gæti verið
skemmtilegt að bjóða upp á tvenns konar
vín með lambinu, eitt frá gamla heiminum
og annað frá þeim nýja, þá er hægt
að bera vínin saman og síðan má ræða um
hvað hverjum finnst passa betur, en í þeim
málum hafa reyndar allir rétt fyrir sér.


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit