Blómkál, blómkál, blómkál

Fyrir 6 manns

BRENNT BLÓMKÁLSMAUK

  • 200 g blómkál
  • 30 g smjör
  • 60 g rjómi
  • Salt
  • Nýkreistur sítrónusafi

Aðferð: Bræðið smjörið í potti. Saxið blómkálið og steikið það í smjörinu við vægan hita uns það verður mjúkt og fær gullinn lit. Maukið í blandara ásamt rjómanum
og smakkið til með ögn af sítrónusafa og salti.

FLAUELSMJÚK BLÓMKÁLSSÚPA

  • 200 g blómkál
  • 2 dl rjómi
  • 2 dl mjólk
  • Salt
  • Nýkreistur sítrónusafi

Aðferð: Saxið blómkálið og setjið það í pott ásamt mjólkinni og rjómanum. Sjóðið rólega þar til blómkálið verður mjúkt. Maukið í blandara uns blandan verður flauelsmjúk. Smakkið til með salti og sítrónusafa.

 

STEIKT BLÓMKÁL

  • 6 fallegir blómkálstoppar
  • 60 g smjör
  • Salt
  • Skessujurt (hægt er að nota aðrar jurtir, t.d. dill, steinselju eða hvönn)
  • Nýmulinn svartur pipar

Aðferð: Setjið blómkálið í sjóðandi vatn og sjóðið í 2 mín. Látið renna af því í sigti og þerrið dálítið. Steikið varlega í smjörinu og kryddið með salti, pipar og saxaðri skessujurt.

 

FRAMREIÐSLA
Setjið eina fulla skeið af brennda maukinu í litla skál, hellið dálítilli súpu yfir og leggið svo varlega  steiktan blómkálstopp efst. Fallegt er að hella nokkrum dropum af repjuolíu (eða annarri góðri olíu) í hring ofan á, bæði til skrauts og yndisauka.

Fengið úr bæklingi frá þemadögum ´Smáréttaveisla´

 

HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI

(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit