Kjúklingabaunir með ananas og jarðhnetum

  • 250 g kjúklingabaunir
  • 1 laukur, skorinn í sneiðar
  • 1/2 tsk tímjan, eða nokkrir ferskir kvistir
  • 1/2 tsk turmerick.
  • 2 hvítlauksrif, söxuð eða marin
  • 1 chilli
  • 2 cm engifer, rifin
  • 2 dl ananassafi, hreinn
  • 200 ml kókosmjólk
  • 50 g hnetusmjör
  • 1 paprika, skorin í strimla
  • 1/2 ananas, skorinn í bita
  • Salt og pipar

Aðferð:
Sjóðið baunirnar. Svitið lauk í potti ásamt tímjan, hvítlauk, chilli og engifer. Þegar laukurinn er orðinn glær er ananassafanum
bætt útí og hann soðinn niður til helminga, þá er kókosmjólk og hnetusmjöri hrært út í. Ananas og papriku er bætt út í sósuna og smá vatni ef þurfa þykir. Baunum hellt út í, soðið upp og smakkað til með salti og pipar. Skreytt með t.d. steinselju.

 

(Frá veitingahúsinu Á næstu grösum)
Fengið úr Vínblaðinu (1.tbl.4.árg) 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit