Thai karrí

  • 2 eggaldin
  • Svartur pipar og salt
  • 1 laukur, sneiddur
  • 2 msk kóríander fræ, ristuð og möluð
  • 1/2 msk cummin fræ, ristuð og möluð
  • 2 msk turmeric (kúrkuma)
  • 1 tsk svartur pipar
  • 1 dós kókosmjólk (400 ml)
  • 200 g tómatpúrre
  • 2 stk lemmongras, marið lítilega eða skorið niður í stilkinn
  • 50 g engifer, fínsaxað
  • 4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
  • 1 lime, rifinn börkur og safi
  • 1-2 chilli, fínsaxað
  • 300 g gulrætur, skornar í sneiðar
  • 300 g seljurót, skræld og skorin í flunnar sneiðar.
  • Blómkálshaus (meðal stór), skorinn í snyrtilega bita.
  • 1/2 búnt kóríander, fíntsaxað

Aðferð:
Svitið laukinn á pönnu í lítilli olíu, bætið ristuðu og möluðu fræjunum útí ásamt turmerik og svörtum pipar. Setjið útí kókosmjólkina ásamt tómatpúrre, lemmon gras, engifer, hvítlauk og lime (byrjið á rífa börkinn með rifjárni og kreistið safann úr). Setjið fínsaxað chilli útí (varið ykkur á styrkleikanum, betra að byrja á því að setja minna og auka frekar við ef
hann reynist mildur). Setjið smá vatn, seljurót og gulrætur útí. Látið malla þar til að grænmetið er orðið mjúkt. Bætið
þá blómkáli og fersku kóríander útí og látið malla í 5 mín í viðbót. Mjög gott að bera fram með hýðishrísgrjónum og einföldu
salati. 

(Frá veitingahúsinu Á næstu grösum)
Fengið úr Vínblaðinu (1.tbl.4.árg)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit