Eggaldin rúlla

  • 2 eggaldin
  • Svartur pipar og salt
  • Tímjan
  • Matarolía
  • 2 dl soðnar kjúklingabaunir
  • 200 g sæt kartafla
  • 1/2 búnt kóríander
  • 30 g engifer, fínt saxað
  • 1 tsk hvítlaukur, maukaður
  • Salt og smá cayenne pipar

Aðferð:
Eggaldin er skorið í flunnar sneiðar, velt uppúr olíu, salti, pipar og tímjani og bakað við 200°C í um 10 mín. Skrælið sætu kartöfluna og skerið í kubba og annað hvort bakið eða sjóðið flar til hún er orðin meyr.

Blandið flá baununum, kartöflunni, kóríanderinu, engiferinu og hvítlauknum saman í matvinnsluvél og maukið. Smakkið til með salti og cayennepipar.

Leggið eggaldinsneiðarnar á borð eða bretti og setjið 2 msk á hverja sneið og rúllið upp, raðið á bökunarplötu með smjörpappír undir og bakið í 10 mín við 150°C. Gott með frísku melónusalati og brauði.

 

 

(Frá veitingahúsinu Á næstu grösum)
Fengið úr Vínblaðinu (1.tbl.4.árg)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit