Grænmetislasagne: með fjórum ostum og brauðbollum

Fyrir 6 manns

Sósa:

  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 laukur, u.þ.b. 100 g, saxaður
  • 1-2 hvítlauksrif, söxuð
  • 4 msk. tómatmauk (puré)
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 tsk. oregano
  • 1 tsk. rósmarín
  • 3 dl vatn
  • 200 g sveppir í bitum
  • 200 g blómkál í bitum
  • 200 g spergilkál í bitum
  • 200 g kúrbítur í bitum
  • 200 g niðursoðnar kjúklingabaunir
  • 1 pakki grænt lasagne
  • 500 g kotasæla
  • 125 g gráðaostur
  • 1 poki rifinn gratínostur
  • 2 pokar mozzarella, litlar kúlur, skornar í tvennt
  • 1 askja konfekttómatar, u.þ.b. 250 g

Aðferð:
Byrjið á að laga sósuna. Svitið saman lauk og hvítlauk og bætið síðan tómatmaukinu út í ásamt oregano og rósmarín. Bætið niðursoðnum tómötum saman við ásamt vatni og látið sjóða við vægan hita í 10-15 mínútur. Steikið grænmetið á pönnu í olíu og blandið út í sósuna ásamt kjúklingabaunum. Látið sjóða í 2-3 mínútur. Síðan er öllu raðað saman á eftirfarandi hátt:

Kotasæla, rifinn gratínostur, lasagneplötur, grænmetisblanda, gráðaostur, lasagneplötur, kotasæla, rifinn gratínostur,   grænmetisblanda, lasagneplötur, kotasæla, gratínostur og grænmetisblanda. Setjið síðan konfekttómata og mozzarellaost ofan á allt saman og bakið við 180°C í 30-40 mínútur.

BRAUÐBOLLUR

  • 2 ½ bolli spelt
  • 1 bolli heilhveiti
  • 5 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • 2 ½ dl hörfræ
  • 3 dl sólblómafræ
  • 2 dl graskersfræ
  • 2 dl rifinn AB ostur
  • ½ l AB mjólk
  • 1 lítil dós kotasæla
  • 1 msk. hlynsíróp

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllu saman og mótið litlar bollur. Setjið í heitan ofn og bakið í 15-20 mínútur.

(Graent01-fengið úr uppskriftarbæklingi frá þemadögunum 'Ostaveisla'- september 2008)

 

HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI

(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit