BRUSCHETTA með mozzarellu og tómötum
Ólífuolía
1 hvítlauksgeiri
1 stk ferskur mozzarella
Ítölsk steinselja til skrauts
Aðferð:
- Grillið brauðið
- Penslið með ólífuolíuNuddið hvítlauksgeiranum við brauðið
- Setjið „tómataklassík“ ofan á brauðið
- Skerið mozzarella í fallega bita og raðið ofan á
- Skreytið með steinseljunni
Ciabatta-brauð
- 11 g þurrger
- 18 g salt
- 250 ml volgt vatn
- 500 g hveiti
- 35 g olía
Aðferð:
- Hveitinu, þurrgerinu og saltinu er hrært saman
- Því næst er vatninu og olíunni hellt í mjórri bunu saman við blönduna og hnoðað þar til deigið hefur fengið slétta áferð
- Þá er það látið hefa sig í 30 mínútur
- Síðan er deigið mótað í lengjur og látið hefa sig aftur í um 30 mínútur
- Loks er það bakað á 220 °C í um 13 mínútur eða þar til það er orðið gullinbrúnt
Tómataklassík
- 500 g tómatar
- 25 g basil
- Hvítlaukur eftir smekk
Aðferð:
- Skerið tómatana í tvennt, saxið hvítlaukinn og bakið í um 10 mínútur á 180°C
- Takið hýðið af tómötunum
- Saxið basilið og blandið öllu saman
- Skerið tómatana í grófa teninga
- Kryddið með salti og pipar
- Munið eftir að sigta vökvann frá.
Hægt er að nota vökvann í tómatsúpu
Til baka