Hreindýratartar með eggjum, laukum, sultaðri hvönn og hvannakremi
Fyrir 6 manns
HREINDÝRATARTAR
- 400 g fitu- og sinalaus hreindýravöðvi (athugið að ekki þarf að nota bestu vöðvana í þennan rétt)
- Salt
- Svartur pipar
- Repjuolía (eða önnur góð olía)
Aðferð: Saxið kjötið þar til það er orðið nokkuð fínt, smakkið til með saltinu, piparnum og olíunni uns allt er himneskt.
EGG
2 harðsoðin egg
Salt
Aðferð: Saxið eggið smátt og smakkið til með saltinu.
LAUKAR
1 skalottlaukur
½ búnt graslaukur
½ rauðlaukur
Aðferð: Allir laukarnir eru saxaðir fínt en þó haldið aðskildum.
SULTUÐ HVÖNN
100 g edik
80 g vatn
80 g sykur
100 g saxaðir hvannastilkar
Aðferð: Setjið edik, vatn og sykur í pott og látið suðuna koma upp. Hellið yfir stilkana, setjið í skál og lokið.
Látið standa í a.m.k. 6 tíma. Bestir verða leggirnir þó eftir u.þ.b. mánuð eða tvo.
HVANNARKREM
3 msk. sýrður rjómi
2 msk. majónes
1 búnt hvannarblöð (hægt er að nota aðrar jurtir, t.d. dill eða steinselju)
1 skalottlaukur
Dálítið eplaedik
Ögn af salti
Aðferð: Setjið hvannarblöðin í sjóðandi léttsaltað vatn og sjóðið í 3 mín. Kælið þau í ísköldu vatni og þerrið síðan. Loks er öllu blandað saman í matvinnsluvél uns flauelsmjúkt og fallegt.
FRAMREIÐSLA
Raðið öllu hlið við hlið á disk svo fallegu litirnir fái að njóta sín.
Fengið úr bæklingi frá þemadögum ´Smáréttaveisla´
HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI
(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)
Til baka