Krydduð svínalund með stöppuðum kartöflum og grilluðum portobellosveppum

  • 900 g svínalund, hreinsuð og skorin í 225 g steikur
  • 4 stórir portobellosveppir
  • 3 dl balsamedik
  • 1 sítróna
  • 1 tsk. púðursykur
  • 1 dl ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif, marin

Aðferð: Leggið steikurnar í eldfast mót og hellið olíu yfir. Kryddið með hvítlauk, salti og pipar og látið standa í 30 mínútur við stofuhita. Setjið balsamedik, sítrónu og púðursykur í pott og sjóðið í 5 mín. Grillið steikurnar og portobellosveppina í 4 mínútur á hvorri hlið. Lækkið hitann á grillinu og látið standa í 5 mínútur. Balsamleginum er hellt yfir steikurnar og sveppina áður en rétturinn er borinn fram.

 

Stappaðar kartöflur

  • 300 g rauðar kartöflur
  • 120 g smjör
  • salt og pipar
  • 1 dós sýrður rjómi

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C og bakið kartöflurnar í 55 mínútur. Setjið kartöflurnar í skál með hýðinu, bætið við smjöri, salti, pipar og sýrðum rjóma og búið til grófa stöppu.

Úr þemabæklingi, Sumarvín 2010

 

 

HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI

(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)

 


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit