Súkkulaðitrufflur
U.þ.b. 50-60 stk.
500 g suðusúkkulaði
- 250 g rjómi
- 500 g dökkt súkkulaði til að hjúpa
- Gott kakó til að velta trufflunum upp úr
Aðferð: Hitið suðusúkkulaðið varlega í örbylgjuofni án þess að hitinn fari yfir 30°C. Hitið rjómann á sama tíma en aðeins upp að 30°C. Blandið rjómanum síðan saman við
súkkulaðið og notið töfrasprotann til að vinna vel saman. Sprautið í litlar kúlur og kælið. Dýfið kúlunum því næst í hjúpsúkkulaðið og veltið svo upp úr góðu kakói.
Fengið úr bæklingi frá þemadögum 'Eftirréttaveisla'
HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI
(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)
Til baka