PANNACOTTA úr hvítu súkkulaði og skyri

  • 500 g rjómi
  • 200 g skyr
  • 200 g mjólk
  • 1 stk. vanillustöng
  • 200 g sykur
  • 4 stk matarlímsblöð
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 1 stk lime
  • 1 stk hafrakex


Aðferð:

  1. Setjið mjólkina og rjóma í pott ásamt sykrinum
  2. Skerið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið innan úr henni og bætið henni við blönduna (ásamt því sem þið skafið innan úr) 
  3. Matarlímsblöðin eru sett í vatn og látin linast
  4. Þegar blandan er byrjuð að sjóða skal taka hana til hliðar og bæta matarlímsblöðunum ásamt hvíta súkkulaðinu við og hræra þangað til súkkulaðið er bráðnað
  5. Takið vanillustöngina upp úr og hrærið skyrinu saman við blönduna 
  6. Hellið í falleg form og látið kólna í 6 tíma 
  7. Brjótið hafrakex yfir
  8. Raspið lime-börk og hvítt súkkulaði yfir formið áður en borið er fram

 

Úr þemabæklingi, Sumarvín 2011


Til baka





 

Breyta um letursærð



Leit

Vöruleit