Coq au vin (rauðvínssoðinn kjúklingur)
3 msk. ólífuolía
- 1 kjúklingur, skorinn í 9 bita
- 2 litlir laukar, skornir í bita
- 2 hvítlauksrif, smátt söxuð
- 10 sveppir, heilir
- 5 beikonsneiðar, skornar í grófa bita
- 2 lárviðarlauf
- 1 tsk. tímían
- 1/3 flaska rauðvín
- 4 cl koníak eða brandí
- 2 msk. söxuð steinselja
- sósujafnari
- 60 g kalt smjör
- salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
Kryddið kjúklingabitana með salti og pipar og steikið þá í olíu á pönnu þangað til þeir verða fallega brúnir. Takið þá bitana af pönnunni og setjið í pott. Setjið lauk, hvítlauk, sveppi og beikon á sömu pönnu og látið krauma. Bætið þá rauðvíni og koníaki á pönnuna, látið sjóða í 1 mín. og hellið síðan yfir í pottinn. Setjið lok á pottinn og látið malla við vægan hita í 30 mín. Síið þá soðið frá, setjið það í annan pott og þykkið með sósujafnara. Bætið steinselju og smjöri í pottinn og hrærið í með sleif þangað til smjörið hefur bráðnað. Eftir það má sósan ekki sjóða. Hellið sósunni yfir í pottinn með kjúklingabitunum og berið fram með t.d. hrísgrjónum, salati og grófu brauði.
Frá þemadögunum, Franskir dagar, 2004.
Uppskriftir og myndir eru frá Gestgjafanum.
HUGMYNDIR AÐ VÍNI SEM PASSAR MEÐ ÞESSUM RÉTTI
(Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hægt er að leita nánar í
vöruleitinni, eða fá aðstoð hjá starfsfólki Vínbúðanna.)
Til baka