Engiferkjúklingur með Mangóchutney (indverskt)
ENGIFERKJÚKLINGUR
með mangóchutney
fyrir 4
- 3-4 kjúklingabringur
- 6 cm blaðlaukur fínsaxaður
- 1 dl mangóchutney
- 1 dl kjúklingasoð
- 2 hvítlauksrif smátt skorin
- 2 msk ólífuolía
- 1 tsk engifer rifið
- avókadó til skrauts
Marinering:
- 2 tsk kóríanderduft
- 2 cm engifer rifinn
- 2 tsk ólífuolía
- 2 tsk hvítvínsedik
- ½ tsk sjávarsalt
- ¼ tsk nýmalaður svartur pipar
MANGÓHRÍSGRJÓN
- 2½ dl hrísgrjón
- 5 dl vatn
- salt eftir smekk
- ½ mangó í litlum bitum
Aðferð: Skerið kjúklinginn á ská í u.þ.b. 2 cm þykka strimla. Blandið saman hráefnunum í marineringuna í miðlungsstóra skál. Látið kjúklinginn liggja í marineringunni við stofuhita í 15 mín. Sjóðið hrísgrjónin í 20 mín. þar til vatnið er gufað upp. Setjið í skál og hrærið mangóbitana út í. Hrærið mangóchutney, kjúklingasoði og hvítlauk saman í lítilli skál. Hitið ólífuolíuna í wok- eða teflonpönnu við meðalhita. Bætið út í olíuna blaðlauknum og rifnu engiferi. Hrærið í 30 sek. Bætið kjúklingnum út í og snöggsteikið í 4-6 mín. eða þangað til kjúklingurinn er fulleldaður. Bætið að lokum mangóchutney saman við og eldið áfram í 2 mín., hrærið í á meðan. Færið í grunna skál og skreytið með avókadó.
Gissur Kristinsson, vínráðgjafi, ráðleggur vín með réttinum:
Þessi réttur passar klárlega mjög vel með léttum og ávaxtaríkum vínum Nýja–heimsins. Þá er um að gera að velja
rauðvín sem er ávaxtaríkt og jafnvel sætkennt. En hér er einnig hægt að nota vín eins og Chardonnay frá Ástralíu og Kaliforníu, þ.e.a.s. vín með mjúka fyllingu og afgerandi tóna af suðrænum ávöxtum. Ekki má þó gleyma því að hér eiga einnig við hin frábæru þýsku hvítvín með sitt súrsæta bragð.

Til baka