Sala á jólabjór og öðrum árstíðabundnum jólavörum hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 5. nóvember. Jólavörurnar njóta jafnan mikilla vinsælda meðal viðskiptavina, enda bjóða þær upp á fjölbreytni og tækifæri til að kynnast nýjum tegundum.
Í dag hefst formleg sala á jólabjór þó enn séu nokkrar vikur til jóla. Í ár verða um 80 tegundir í sölu, sumar í margvíslegum umbúðum eins og mismunandi stærðum af dósum og flösku. Það er ekkert svo ógurlega langt síðan það voru örfáar tegundir í boði og margar þeirra keimlíkar. Í dag sjáum við hins vegar að fjölbreytileikinn hefur tekið við stjórnina og við fögnum því. Þannig eru í boði allt frá léttari lite bjórum til þéttra stout bjóra. En hvernig áttu að komast að því hvað er best að smakka?
Gjafakortin er hægt að nota í öllum Vínbúðum og einnig hægt að kaupa þau þar.
Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...
Víða í Suður-Ameríku allavega í Argentínu og Uruguay er ekki venjan að bera fram rjóma eða soðsósur með grillmatnum. Þess í stað er oft notuð fersk sósa Chimichurri gerð úr ólífuolíu og ferskum kryddjurtum. Það er tilvalið að breyta til og reyna þessa nýju sósu sem passar með svo mörgu.
Með einni ákvörðun getur það sem upphaflega átti að gera góðan gleðskap betri leitt af sér hörmungar og ævarandi iðrun. Hér er verið að tala um það þegar menn setjast undir stýri eftir neyslu áfengis...