Uppskriftavefur Vínbúðarinnar lumar á ýmsum hugmyndum fyrir matgæðinga. Þar má finna fjölbreytt úrval uppskrifta sem henta ólíkum smekk og tilefnum, hvort sem leitað er að ljúffengum fiskrétti, gómsætum kjúklingarétti, grænmetisréttum eða freistandi eftirréttum.
Hitabylgjur sumarsins í Evrópu hafa vafalaust ekki farið framhjá neinum. Fyrir vínræktendur er það ekki bara hitinn sem getur reynst erfiður fyrir vínviðinn, heldur einnig þurrkarnir og vatnsskorturinn sem honum fylgir. Vínviðurinn er nokkuð harðger planta og þolir ágætlega þurrka miðað við aðrar landbúnaðarplöntur, en á þó sín takmörk. Langvarandi hiti og þurrkur getur valdið því að plantan hætti að starfa og leggist í dvala, eða jafnvel deyi. Uppskerumagn reynist einnig minna þar sem minni vökvi fer í berin sjálf.
Gjafakortin er hægt að nota í öllum Vínbúðum og einnig hægt að kaupa þau þar.
Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...
Frísklegt hvítvín parast vel með bleikjunni. Reynið gjarnan Albarino eða ósætan Riesling. Ef velja á bjór henta hveitibjórar eða belgískt öl (saison) vel.
Háskólinn í Michigan gerði rannsókn þar sem kannaður er kostnaður og ávinningur af einkasölu ríkis á áfengi og dreifingu. Byggt var á þriggja áratuga gögnum frá ýmsum fylkjum Bandaríkjanna.