Sala á jólabjór og öðrum árstíðabundnum jólavörum hefst í Vínbúðunum fimmtudaginn 5. nóvember. Jólavörurnar njóta jafnan mikilla vinsælda meðal viðskiptavina, enda bjóða þær upp á fjölbreytni og tækifæri til að kynnast nýjum tegundum.
Nú þegar október er runninn upp er langt liðið á uppskerutíma á norðurhveli jarðar. Með árunum hefur upphaf uppskeru stöðugt færst framar í dagatalinu. Er það einkum rakið til hlýnunar jarðar, þar sem hækkandi meðalhiti flýtir fyrir þroskaferli berjanna. Það er þó ekki endilega jákvætt því vínberið þarf ákveðinn tíma til að þroskast og oftar en ekki er betra að það flýti sér hægt.
Gjafakortin er hægt að nota í öllum Vínbúðum og einnig hægt að kaupa þau þar.
Með bláskel gæti ferskur Sauvignon Blanc gengið vel upp. Nýsjálenskur Sauvignon Blanc er að öllu jöfnu ávaxtaríkari en franskur Sancerre, sem yfirleitt gefur af sér grösugri bragðeinkenni. Spænskur Albariño hefur bæði ferskleikann og ávaxtarík einkenni til að parast með bláskelinni...
Ósætt hvítvín gjarnan með karakter af sítrus og steinefnum, t.d. frá Ástralíu eða franskan Chablis.
Háskólinn í Michigan gerði rannsókn þar sem kannaður er kostnaður og ávinningur af einkasölu ríkis á áfengi og dreifingu. Byggt var á þriggja áratuga gögnum frá ýmsum fylkjum Bandaríkjanna.