Ljósrafgullinn. Sætuvottur, meðalfylltur, miðlungsbeiskja. Maltbrauð, grösugir humlar, jö Sjá meira
Ljósrafgullinn. Sætuvottur, meðalfylltur, miðlungsbeiskja. Maltbrauð, grösugir humlar, jörð.
Humlaður lager
Eins og nafnið gefur til kynna þá tilheyra þessum flokki lagerbjórar sem hafa sterkari humlaeinkenni en aðrir. Hér er hægt að finna bjóra sem hafa verið þurrhumlaðir, oftast með humlum sem einkennast af suðrænum ávöxtum. Humlaður lager getur minnt á IPA en hefur þó yfirleitt hreinni maltkarakter.
Ljós lager
Ljós lager er vinsælasti flokkur bjórs í dag og á rætur sínar að rekja til borgarinnar Pilsen í Tékklandi. Þetta eru undirgerjaðir bjórar og eru eins og nafnið gefur til kynna ljósir eða gullinn á lit og flestar tegundir bragðmildar, þó með undantekningum. Algengast er að vínandastyrkur sé á bilinu 4,5% - 5,6% en þó eru til tegundir sem hafa minni styrkleika eða meiri. Ljósir lager bjórar eiga að vera ferskir og brakandi og bragð einkennist af korninu sem notað er við framleiðslu bjórsins, nokkuð mikilli freyðingu, og fremur lítilli til miðlungs beiskju. Humlar eru notaðir sem mótvægi við sætuna í maltvökvanum.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna