Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ostakaka

Fjöldi
12
Innihaldsefni 1 kg rjómaostur 480 ml rjómi 7 stk. egg 420 g sykur 60 g hveiti Hindber
Aðferð
  1. Hyljið 28x7 cm smelluform með tveimur lögum af smjörpappír.
  2. Hitið ofninn í 220°C og stillið á blástur. Setjið rjómaostinn í hrærivél ásamt sykrinum og hrærið vel saman, bætið eggjunum út í, einu í einu.
  3. Gott er að nota sleikju til að ná úr botninum.
  4. Setjið þá rjómann saman við og að lokum er hveitinu blandað við.
  5. Hellið soppunni í formið, setjið í vel heitan ofninn og bakið í u.þ.b. 50 mín.
  6. Látið kólna að stofuhita í 2-3 klst.
  7. Gott að bera fram með ferskum hindberjum.

 

VÍNIN MEÐ
Rétturinn hentar vel með sætu eða millisætu rósavíni

Frá þemadögum ´Lífrænir dagar´- 2016 (PDF) Uppskrift fengin frá Steinari Þór Þorfinnssyni, Krúska
Fleiri Skyldir Réttir