Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nautasalat með parmesan

Fjöldi
4
Innihaldsefni 600 g nautakjöt 2 pokar klettasalat Parmesan Balsamedik eftir smekk
Aðferð
  1. Nautakjötið er skorið í strimla og steikt á pönnu með smá salti og pipar.
  2. Balsamediki bætt á pönnuna og látið sjóða í ca 1-2 mín. Nautakjötið tekið af pönnunni og balsamedikið soðið niður um helming.
  3. Klettasalatið er sett á disk, nautakjötinu og balsamedikinu dreift yfir.
  4. Loks er parmesan rifinn með ostaskera yfir salatið.

 

VÍNIN MEÐ
Rétturinn hentar vel með lífrænu rauðvíni í léttari kantinum.  Sérstaklega þau með sætuvotti (smásætt).  

Frá þemadögum ´Lífrænir dagar´- 2016 (PDF) Uppskrift fengin frá Steinari Þór Þorfinnssyni, Krúska
Fleiri Nautakjötsréttir