Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fylltar kjúklingabringur

með parmaskinku og gorgonzola (ásamt villisveppa-risotto)

Fjöldi
4
Innihaldsefni 4 stk. kjúklingabringur 4 sneiðar parmaskinka 4 msk. gorgonzola ostur (eða annar ostur) Salt og pipar úr kvörn VILLISVEPPA-RISOTTO Risotto-grjón, grunnuppskrift 2-3 stk. skalottlaukar ½ dl jómfrúarólífuolía 250 g Arborio risottogrjón frá Gallo 1 l kjúklinga- eða grænmetissoð 1 msk. smjör Salt og pipar VILLISVEPPIR 100-200 g góðir sveppir t.d. portobello (ferskir villisveppir eru bestir ef þeir eru fáanlegir) 50 g þurrkaðir villisveppir, lagðir í bleyti (soðið sigtað frá) 50 g smjör 2 msk. ólífuolía 250 ml rjómi (má sleppa) 100 g ferskur parmesanostur Salt og pipar úr kvörn
Aðferð
  1. Þerrið kjúklingabringurnar og skerið í þær vasa til að koma fyllingunni í.
  2. Setjið bita af osti á hverja skinkusneið, rúllið upp og setjið böggulinn inn í vasann á kjúklingabringunni.
  3. Steikið bringurnar á snarpheitri pönnu og brúnið þær vel á hvorri hlið.
  4. Saltið og piprið.
  5. Setjið í eldfast fat og steikið í ofni við 180°C í ca 15-20 mín.
  6. Borið fram með villisveppa-risotto.

 

VILLISVEPPA-RISOTTO

Hitið olíuna í góðum potti og svitið laukinn, má ekki brúnast. Bætið hrísgrjónunum út í og hitið saman, hrærið stöðugt í ca 1 mín. Hellið ¼ af heitu soðinu út í og látið malla þar til grjónin hafa tekið það í sig. Bætið síðan bolla og bolla í einu af soðinu þar til grjónin eru orðin mjúk og hafa drukkið í sig allan vökvann, 15-18 mínútur.

 

VILLISVEPPIR

Hitið olíu og smjör á góðri pönnu. Steikið sveppina þar til fallega brúnaðir, hellið rjómanum út í og sjóðið um stund þar til hann hefur þykknað örlítið. Rjómanum má sleppa en bætið þá við ca 50 g af smjöri í lokin. Bætið risottogrjónunum saman við og hrærið í þar til allt hefur blandast vel saman. Hrærið rifnum parmesanostinum saman við að endingu og berið fram. Skreytið með grófrifnum parmesanostinum og svörtum pipar. Borðist eitt og sér með góðu brauði eða sem meðlæti með öðrum réttum, t.d. fylltu kjúklingabringunum.

 

VÍNIN MEÐ
Í vöruleitinni er hægt að finna góð vín með þessum rétti.

Fleiri Kjúklingaréttir