Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Créme brulée

Fjöldi
6
Innihaldsefni 400 ml rjómi 6 stk. eggjarauður 75 g sykur Hrásykur
Aðferð
  1. Hitið ofninn í 150°C.
  2. Setjið rjómann í pott og hitið að suðu en látið hann ekki sjóða.
  3. Setjið eggjarauður og sykur í skál og þeytið mjög vel, þar til blandan er létt og ljós.
  4. Fleytið þá sjóðheitum rjómanum smátt og smátt saman við.
  5. Raðið 6 litlum formum (souffléformum, kaffibollum eða öðrum hentugum ílátum) í eldfast fat eða djúpa ofnskúffu. Skiptið blöndunni jafnt í formin, hellið sjóðandi vatni í ytra formið, svo miklu að það nái upp á miðjar hliðar litlu formanna, og bakið í miðjum ofni í 40-45 mínútur, eða þar til blandan hefur stífnað en dúar samt enn svolítið.
  6. Takið formin þá út og látið kólna og setjið þau síðan í kæli í nokkrar klukkustundir.
  7. Takið formin úr kæli nokkru áður en bera á réttinn fram.
  8. Stráið u.þ.b. 2 tsk. af hrásykri yfir hvern búðing. Það er gott að bleyta yfirborðið örlítið fyrst með vatni, t.d. pensla það eða úða með úðabrúsa, þá leysist sykurinn betur upp. Notið lítinn gasbrennara til að bræða sykurinn og karamellumetta hann. Hreyfið logann fram og aftur svo að karamellan brenni ekki um of. Látið bíða nokkra stund áður en rétturinn er borinn fram.

 

VÍNIN MEÐ

Eftirréttavín, hvít eða rauð eru upplögð með þessum rétti.

Frá þemadögunum Franskir dagar 2004 (PDF) Uppskrift fengin frá Gestgjafanum
Fleiri Skyldir Réttir