Sardinía er önnur stærsta eyjan á Miðjarðarhafi, á eftir Sikiley en hún er þekkt fyrir fallegar strendur og nuraghi, sérstæðar steinminjar sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Sardinía, eða Sardegna á ítölsku, er einnig vínræktarhérað sem hefur farið lítið fyrir en er vert að skoða, þá sérstaklega fyrir þær berjategundir sem þar er að finna og veðurfar.

Á mynd: Nuraghi, sérstæðar steinminjar sem eru á heimsminjaskrá UNESCO
Cannonau er langmest ræktaða þrúgan á Sardiníu en hún er einnig þekkt sem Grenache Noir í Rónardalnum í Frakklandi. Rauðvínin geta verið allt frá léttari og ávaxtaríkari vínum og upp í kröftug og bragðmikil vín sem jafnvel hafa fengið sinn tíma í eikarþroskun.
Carignano er mest ræktuð í suð-vestur hluta eyjunnar þar sem náttúruleg áhrif skila sér í lægra uppskerumagni og bragðmeiri vínum sem, eins og Cannonau, geta verið allt frá léttari og ávaxtaríkum vínum og upp í kröftug og bragðmikil vín sem hafa legið í eikartunnum í einhvern tíma.
Vermentino er næst mest ræktaða þrúgan á Sardiníu og gefur af sér fersk hvítvín með sítrus og blómatónum, jafnvel þroskaðari steinávöxtum í einhverjum tilfellum. Nuragus er minna ræktuð en þó ekki síður áhugaverð þar sem hún er ein af innlendum þrúgum sem fyrirfinnast einungis á Sardiníu.
Til að fá ferskari og sýrumeiri vín eru víngarðar plantaðir í hæðum en hlýir vindar sem blása af hafi sjá til þess að mygla á erfitt uppdráttar sem skilar sér í betra hráefni til víngerðar.
Í Vínbúðunum má finna vín frá Sardiníu en hægt er að skoða úrvalið hér.

Berglind Helgadóttir DipWSET
Vínsérfræðingur