Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Áríðandi innköllun á bjór sem getur bólgnað út og sprungið

04.06.2021

ÁTVR innkallar vöruna The Brothers Brewery Sigla Humlafley Session IPA, sem er bjór, í 330 ml áldós þar sem umbúðir vörunnar geta bólgnað út og sprungið með tilheyrandi slysahættu. Innköllunin miðast eingöngu við birgðir vörunnar merktar með best fyrir dagsetningunni: 18.08.21. Varan hefur nú þegar verið fjarlægð úr hillum vínbúðanna. Allir sem eiga þessa vöru, með fyrrnefndri best fyrir dagsetningu, eru beðnir um að farga henni eða skila henni í næstu vínbúð og fá hana þar bætta. Ef umbúðir vörunnar eru bólgnar er rétt að leiðbeina um að opna umbúðirnar að viðhafðri fyllstu varúð.

Framleiðandi vörunnar og ábyrgðaraðili er: The Brothers Brewery ehf., Hvítingavegi 6, 900 Vestmannaeyjar. 

Strikamerki: Á áldós: 5 694230 273195 / 5 694230 273300. Á kippu sem geymir 4 áldósir: 5 694230 273416. Á kassa sem geymir 24 áldósir: 5 694230 273256.

Varan hefur verið boðin til sölu í 16 verslunum ÁTVR: Kringlunni, Skeifunni, Heiðrúnu, Dalvegi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Skútuvogi, Stekkjarbakka, Spönginni, Smáralind, Hafnarfirði, Akureyri, Reykjanesbæ, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.  

Nánari upplýsingar veitir Skúli Þór Magnússon, sérfræðingur á vörusviði, s. 842-2747 og skuli@vinbudin.is