Rauður. Sætuvottur, léttur, ferskur, hverfandi beiskja. Súr kirsuber, kirsuberja Sjá meira
Rauður. Sætuvottur, léttur, ferskur, hverfandi beiskja. Súr kirsuber, kirsuberjasteinn.
Ávaxta Lambic
Oftast þekktir undir nöfnum eins og Kriek, Peche, Framboise o.fl., eru Lambic bjórar sem hafa legið á ávöxtum. Þessir bjórar geta verið ósætir eða sætir, skírir eða skýjaðir en alltaf hafa þeir sýruna sem einkennir Lambic bjóra.
Súrbjór
Fjölbreyttir bjórar, yfirleitt öl, sem samkvæmt hefð innihalda hátt hlutfall hveitis, sem gengið hafa í gegnum ferli sem gerir þá súra. Sýrustig þessara bjóra er misjafnt og fer í raun eftir því hvaðan bjórarnir koma og hverju bruggarinn sækist eftir. Súrbjórar geta verið hreinir og ferskir eða innihaldið ýmsar bakteríur og gerafbrigði, eins og Brettanomyces sem gefur þeim ilm og bragð af heyi, sveit og plástri, svo fátt eitt sé nefnt. Sumir eru látnir liggja á ávöxtum eins og kirsuberjum. Vínandastyrkur getur verið frá 3% til 8%. Heimalönd þessara bjóra eru Belgía og Þýskaland, en önnur lönd hafa verið að sækja í sig veðrið, sér í lagi Bandaríkin.Bjórar í þessum flokki eru bestir framreiddir við um 7-10°C Sjá minna