Vínbúðin leggur áherslu á að bjóða vörur sem framleiddar eru í sátt við samfélag og umhverfi. Til að auka gagnsæi fyrir neytendur eru sérstakar merkingar í hillum Vínbúðanna og hér á vefnum fyrir vottaðar vörur. Í þeim flokki eru vörur sem hafa vottun um lífræna ræktun, sjálfbæra framleiðslu, bíódínamíska ræktun og vottun um sanngjarna framleiðslu.
Markmiðið með vottun vara er að vernda líffræðilega fjölbreytni og heilbrigði jarðvegs, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og tryggja góð vinnuskilyrði. Líffræðileg fjölbreytni er grundvallaratriði fyrir heilbrigði vistkerfa, velferð samfélaga og sjálfbærni fyrirtækja.

Vörurnar eru merktar með viðeigandi merki og lit í hillum Vínbúðanna og ætti að vera auðvelt að finna. Einnig er alltaf hægt að sjá vöruúrvalið á vinbudin.is og í hvaða Vínbúðum varan fæst hverju sinni.