Umhverfishrós til Vínbúðarinnar á Flúðum

18.06.2025

Vínbúðin á Flúðum hlaut Umhverfishrós Hrunamannahrepps 2025, en viðurkenningin var afhent við hátíðarhöld þann 17. júní.

Í umsögn umhvefisnefndar segir:
"Í gegnum árin hefur umhverfi búðarinnar verið snyrtilegt og vel við haldið. Falleg beð taka á móti viðskiptavinum og gestum sem oft á tíðum nýta bekkinn fyrir framan búðina til að slaka á og njóta.  Starfsfólk leggur metnað í að viðhalda fallegu umhverfi og að hafa almenna ásýnd búðarinnar til fyrirmyndar."

Við erum að vonum stolt af búðinni okkar, enda umhverfismál og samfélagsábyrgð okkur hjartans mál.

Á myndinni má sjá Maríu, verslunarstjóra í Vínbúðinni á Flúðum taka við viðurkenningunni.