Á sumrin er sérstaklega skemmtilegt að leika sér með litríka drykki þegar sólin lætur sjá sig. Hér eru uppskriftir af þremur kokteilum sem gaman væri að prófa, en á kokteilsíðu Vínbúðanna má finna fjölda uppskrifta af spennandi kokteilum, bæði áfengum og óáfengum, sem henta flestum tilefnum.
Hverjum kokteil fylgja leiðbeiningar þar sem bent er á erfiðleikastig, hentuga glasategund til að bera kokteilinn fram í og hvaða áhöld er gott að hafa við höndina. Þá er einnig hægt að smella á innihaldsefnin og sjá hvað er til í vörusafni Vínbúðanna hverju sinni. Einnig er mjög þægilegt að geta leitað eftir tegundum og jafnvel hvort stendur til að bjóða upp á drykkinn fyrir eða eftir mat, í veislu eða bara til að njóta í sumarblíðunni. Fyrir þá þemaglöðu er einnig hægt að flokka kokteilana eftir litum.
Spritz Veneziano (Aperol Spritz)

Jarðarberja Mojito

Chili Passion Martini

SJÁ MEIRA Á KOKTEILSÍÐUNNI..