Þorgerður Kristín Þráinsdóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra ÁTVR, en hún mun hefja störf 1. september nk. Tilkynningin var birt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, en Þorgerður var valin úr hópi nítján umsækjenda.
Þorgerður hefur frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar, en áður starfaði hún hjá Lyfju hf., sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri. Hún er með B.A. og Cand.Psych. gráðu í sálfræði, með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði. Hún hefur einnig lokið PMD stjórnendanámi auk fjölmargra námskeiða tengdum stjórnun og stefnumótun.
Vínbúðirnar bjóða Þorgerði velkomna í öflugan starfsmannahóp fyrirtækisins.