
Vanillu Panna Cotta og fersk hindber
Fyrir 4
PANNA COTTA
4-5 blöð matarlím (9 g)
400 ml rjómi
80 ml mjólk
80 ml sykur
1 stk. vanillustöng
1 box fersk hindber
Fersk mynta til skreytingar
Aðferð:
Leggið matarlím í bleyti í ískalt vatn.
Skerið upp vanillustöng og skafið fræin innan úr. Hitið upp að suðu rjóma, mjólk, sykur, vanillufræ og vanillustöng. Takið af hitanum, setjið lok á pottinn og látið vera í 30 mín. Velgið aftur rjómablönduna og bætið við matarlími. Sigtið í gegnum fínt sigti og skiptið blöndunni strax í fjóra bolla eða hringlaga álform. Geymið a.m.k. í 2-3 klst. í kæliskáp áður en borið fram.
HINDBERJASÓSA
150 g frosin hindber
40 g sykur
2 msk. sítrónusafi
3-4 msk. vatn
Aðferð
Blandið saman í potti frosin hindber, sykur, sítrónusafa og vatn. Hrærið og hitið upp að suðu. Blandið síðan í matvinnsluvél. Hellið gegnum sigti og geymið í kæli.
Takið til fjóra diska. Losið Panna Cotta úr bollum eða álformum með því að dýfa ofan í heitt vatn í 2-3 sekúndur. Búðingurinn losnar og hægt er að hvolfa honum á diskinn. Setjið u.þ.b. 2 msk. af hindberjasósu í kringum búðinginn og skreytið með ferskum hindberjum og myntu.
Uppskriftin kemur frá veitingastaðnum Essensia.